Fótbolti

Andri Rúnar með tvennu í bikarsigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Andri Rúnar Bjarnason raðaði inn mörkum fyrir Grindavík. Hann er byrjaður að gera slíkt hið sama í Svíþjóð.
Andri Rúnar Bjarnason raðaði inn mörkum fyrir Grindavík. Hann er byrjaður að gera slíkt hið sama í Svíþjóð. Mynd/Adidas
Andri Rúnar Bjarnason er byrjaður að raða inn mörkum á sænskri grundu en þessi mikli markahrókur var á skotskónum í sænsku bikarkeppninni í dag.

Andri Rúnar var í byrjunarliði Helsingborg þegar liðið mætti Tvaaaakers IF í riðlakeppni bikarsins. Hann kom Helsingborg í 2-0 með tíu mínútna millibili á síðasta stundarfjórðungi fyrri hálfleiks.

Helsingborg skoraði svo eitt mark til viðbótar þrátt fyrir að hafa misst mann af velli í stöðunni 2-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×