Enski boltinn

Tímamótasigur fyrir Sean Dyche

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sean Dyche
Sean Dyche vísir/getty
Burnley vann endurkomusigur á Everton í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton heimsóttu Jóhann Berg Guðmundsson og félaga á Turf Moor.

Cenk Tosun kom Everton yfir snemma leiks og slökkti það væntanlega í vonum stuðningsmanna Burnley um sigur þar sem liðið hafði aldrei náð að koma til baka og vinna leik eftir að hafa lent undir í ensku úrvalsdeildinni undir stjórn Sean Dyche, þar til í gær.

Ashley Barnes og Chris Wood skoruðu fyrir Burnley í síðari hálfleik og í fyrsta skipti í sögunni tókst Dyche að snúa töpuðum leik í sigur, eftir 60 tilraunir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×