Handbolti

Barcelona með góðan sigur á Pick Szeged │ PSG og Kiel skildu jöfn

Einar Sigurvinsson skrifar
Aron í leik með Barcelona.
Aron í leik með Barcelona. fc barcelona
Barcelona hafði betur gegn ungverska liðinu Pick Szeged í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld. Leiknum lauk með eins marks sigri Barcelona, 28-27. Dómarar leiksins voru þeir Anton Pálsson og Jónas Elíasson.

Aron Pálmarsson átti fínan leik fyrir Barcelona og skoraði þrjú mörk úr fimm skotum. Stefán Rafn Sigurmannsson, félagi hans úr Hafnarfirðinum, skoraði fimm mörk úr jafn mörgum skotum í leiknum og var markahæstur leikmanna ungverska liðsins.

Alfreð Gíslason.Vísir/Getty
Leikur PSG og Kiel var æsispennandi en PSG jafnaði á síðustu sekúndum leiksins eftir frábæra endurkomu lærisveina Alfreðs Gíslasonar í Kiel. Lokatölur í þeim leik 29-29.

PSG hafði mikla yfirburði í fyrri hálfleik og voru fimm mörkum yfir í hálfleik, 16-11. Kiel komu miklu sterkari inn í seinni hálfleikinn og jöfnuðu leikinn á 43. mínútu, 20-20.

PSG náði síðan að klára síðustu sókn leiksins og skildu liðin því jöfn. Eitt stig var nóg fyrir Kiel til þess að fara upp í 4. sæti síns riðils og mæti þeir því Pick Szeged í 16-liða úrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×