Fótbolti

Fiorentina og Cagliari munu ekki nota treyjunúmer Astori aftur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Stuðningsmenn Fiorentina hafa minnst Astori síðustu daga.
Stuðningsmenn Fiorentina hafa minnst Astori síðustu daga. vísir/getty
Ítölsku félögin Fiorentina og Cagliari tilkynntu í dag að númerið 13 yrði aldrei aftur notað hjá félögunum. Þessi ákvörðun er tekin til að heiðra minningu Davide Astori sem lést um síðustu helgi.

Astori var aðeins 31 árs gamall er hann lést á hóteli Fiorentina-liðsins um síðustu helgi. Hann var fyrirliði liðsins og lék þar áður með Cagliari.

Astori kom til Fiorentina frá Cagliari árið 2016 og náði að spila 58 leiki fyrir félagið áður en hann lést.

Lík Astori var krufið í dag og að lokinni krufningu komust læknar að því að hann hefði farið í hjartastopp og látist í svefni. Hann verður borinn til grafar á fimmtudag. Astori var giftur og átti tveggja ára dóttur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×