Golf

Frábær dagur hjá Valdísi Þóru sem er komin upp í fjórða sætið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir komst upp í hóp efstu kylfinga með frábærri spilamennsku.
Valdís Þóra Jónsdóttir komst upp í hóp efstu kylfinga með frábærri spilamennsku. LET/Tristan Jones
Valdís Þóra Jónsdóttir spilaði frábærlega á öðrum degi Investec golfmótsins í Suður Afríku í dag en mótið er hluti af evrópsku mótaröðinni.

Valdís Þóra spilaði á tveimur höggum yfir pari á fyrsta hringnum í gær og var því 27 sætum frá toppnum. Hún fann sig hinsvegar miklu betur í dag og lék þá á þremur höggum undir pari.

Valdís Þóra fékk fjóra fugla á fyrstu níu holunum og var þar með komin tvö högg undir par samanlagt.

Einn fugl og einn skolli á næstu átta holum en svo fékk hún skolla á átjándu holunni. Valdís hefur þar með tapað þremur höggum á átjándu holunni því hún fékk skramba á henni í gær.  

Valdís lék því á 69 höggum í dag eða þremur höggum undir pari. Hún er því ða einu höggi undir pari samtals og kom inn í fjórða sætinu.  

Valdís Þóra er þvi í toppbaráttunni fyrir lokahringinn en leiknar verða aðeins 54 holur og mótinu lýkur því á morgun.

Þetta er annað LET-mótið á stuttum tíma þar sem Valdís Þóra er í toppbaráttunni en hún varð í þriðja sæti á Ladies Classic Bonville mótinu sem fram fór í Ástralíu í febrúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×