Erlent

Tölva meti þörf fyrir sjúkrabíl

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Tölva á að reikna út fyrir sænsku neyðarlínuna hvaða aðstoð á að veita.
Tölva á að reikna út fyrir sænsku neyðarlínuna hvaða aðstoð á að veita. Vísir/AFp
Hjúkrunarfræðingar við neyðarlínuna í Uppsölum eiga í tilraunaskyni um tveggja ára skeið að styðjast  við tölvuforrit þegar þeir meta ástand þess sem hringt er vegna og hvort þörf sé á að senda sjúkrabíl. 

Þegar hringt er í neyðarlínuna á hjúkrunarfræðingur við símann að færa inn í tölvuna upplýsingar um það sem gerðist auk upplýsinga um ástand viðkomandi, mögulega sjúkdóma og sjúkdómssögu. Þessar upplýsingar mun tölvan bera saman við sambærileg gögn og reikna út hvers konar aðstoð sé nauðsynleg.

Samkvæmt frétt sænska ríkis­útvarpsins er þetta í fyrsta skipti sem notast er við gervigreind á þennan hátt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×