Handbolti

Seinni bylgjan: Daníel sippaði og sippaði og sippaði

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Það var stutt í grínið að vanda hjá strákunum í Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport í gærkvöld. Þeir tóku saman helstu mistök og klúður úr nýliðnum leikjum í Olís deild karla í handbolta í skemmtilegt myndband undir yfirskriftinni Hætt'essu.

Sérstaklega tóku þeir fyrir markvörð Fram, Daníel Þór Guðmundsson, sem sippaði og sippaði og sippaði í hálfleik leiks Fram og Víkings á sunnudaginn.  

Vanti hláturtaugarnar smá hvatningu þá er þetta stórskemmtilega myndbrot hér í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×