Erlent

Bíl ekið á öryggistálma við Hvíta húsið

Kjartan Kjartansson skrifar
Bíllinn sem ekið var á öryggistálma utan um lóð Hvíta hússins.
Bíllinn sem ekið var á öryggistálma utan um lóð Hvíta hússins. Vísir/AFP
Mikill viðbúnaður var við Hvíta húsið í Bandaríkjunum eftir að bíl var ekið á öryggistálma þar í dag. Kona sem ók bílnum var handtekin á staðnum en bíllinn fór ekki í gegnum tálmann.

Politico greinir frá því að öryggisráðstafanir hafi strax verið hertar við Hvíta húsið. Leyniþjónustumenn hafi sést á hlaupum á lóð Hvíta hússins. Þeir rannsaka nú atvikið.

Bíllinn skall á tálma suðvestur af Hvíta húsinu. Engir lögreglu- eða leyniþjónustmenn eru sagðir hafa slasast við uppákomuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×