Enski boltinn

Rikki grét úr hlátri eftir að hafa prumpað í beinni | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þetta voru líklega lengstu tvær mínútur á sjónvarpsferli Rikka. Á endanum var hann orðinn kófsveittur og farinn að tárast af hlátri.
Þetta voru líklega lengstu tvær mínútur á sjónvarpsferli Rikka. Á endanum var hann orðinn kófsveittur og farinn að tárast af hlátri.
Hún var frekar súr stemningin í myndveri Stöðvar 2 Sport í gær er Ríkharð Óskar Guðnason „sleppti óvart einum“ eins og stundum er sagt.

Með öðrum orðum þá rak Rikki við í beinni útsendingu í Messunni og það fór ekki fram hjá félögum hans í settinu, þeim Reyni Leóssyni og Jóhannesi Karli Guðjónssyni.

Reynir átti erfiðast með að halda andliti en við tóku tvær afar erfiðar mínútur fyrir þá þrjá í settinu.

Það var mikið hlegið en einhvern veginn náði þátturinn að halda áfram. Rikki var svo farin að tárast úr hlátri er hann gat loksins skipt yfir í auglýsingar og fengið tíma til þess að jafna sig.

Óborganleg uppákoma sem má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×