Vandræði WBA halda áfram

WBA er í miklum vandræðum.
WBA er í miklum vandræðum. vísir/getty
Southampton er komið í átta liða úrslit enska bikarsins eftir 2-1 sigur á vandræðaliði West Bromwich Albion, en leikmenn WBA höfðu verið mikið í umræðunni síðasta sólarhring fyrir miður gáfuleg atvik.

Fréttir bárust af því í gær að Johnny Evans, Gareth Barry og fleiri væru grunaðir um að stela leigubíl á Spáni, en lesa má meira um málið hér.

Evans og Barry voru báðir í byrjunarliðinu í dag, en Weshley Hoedt kom Southampton yfir á 11. mínútu og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Dusan Tadic tvöfaldaði forystuna fyrir gestina á 56. mínútu, en einungis andartaki síðan minnkaði Salomon Rondon muninn með geggjuðu marki.

Nær komust heimamenn ekki og eru úr leik í enska bikarnum, en liðið er einnig á botni ensku úrvalsdeildarinnar. Southampton er hins vegar komið í átta liða úrslitin.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira