Enski boltinn

Rosalegur mánuður framundan hjá Chelsea

Anton Ingi Leifsson skrifar
Það er erfiður mánuður sem bíður Conte.
Það er erfiður mánuður sem bíður Conte. vísir/getty
Það er heldur betur þétt leikjadagskráin framundan hjá Englandsmeisturum Chelsea, en þeir eru í baráttu á flestum þeim vígstöðvum sem hægt er að berjast á.

Í vikunni mæta þeir Barcelona í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á heimavelli, en á milli leikjanna við Barcelona spila þeir tvo útileiki gegn Man. Utd og Man. City.

Áður en þeir halda til Barcelona í síðari leikinn spila þeir gegn Crystal Palace á heimavelli, en Roy Hodgson og hans lærisveinar hans í Palace eru sýnd veiði en ekki gefin.

Þetta er heljarinnar mánaðardagskrá hjá Chelsea, en þessir leikir eru spilaðir frá 20. febrúar þangað til 14. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×