Golf

Einn skrambi og tveir fuglar á fyrsta hring Valdísar á árinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. LET/Tristan Jones
Valdís Þóra Jónsdóttir lék fyrsta hringinn á á Oates Vic mótinu í Ástralíu á tveimur höggum yfir pari sem skilar henni upp í 63. sæti eftir átján holur.  Valdís Þóra er að keppa á Evrópumótaröðinni.

Valdís Þóra hóf leik á tíunda teig og var á pari eftir fyrstu níu holurnar. Hún fékk einn skolla og einn fugl á fyrri níu.

Seinni níu byrjuðu hinsvegar ekki vel því Skagastelpan fékk skramba á holu eitt þegar hún lék par fjögur holuna á sex höggum.

Valdís Þóra var síðan með einn fugl og einn skolla á síðustu átta holunum og endaði hringinn því á tveimur höggum yfir pari.

Þetta er fyrsta mót ársins hjá Valdísi á LET Evrópumótaröðinni og mótið er það fyrsta á tímabilinu á sterkustu mótaröð Evrópu. Mótið heitir Oates Vic og er það mjög sérstakt þar sem keppt er á Evrópumótaröð karla á sama velli á sama tíma. Verðlaunaféð er jafnhátt í karla – og kvennaflokki, og er það einsdæmi í atvinnugolfinu.

Keppt er á tveimur völlum, Beach og Creek, og hefur Valdís leik á Beach vellinum.

Valdís Þóra keppti á þessu móti í fyrra og endaði í 51. sæti en þetta er annað tímabil hennar á sterkustu mótaröð Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×