Golf

Valdís Þóra ekki með á lokahringnum í Ástralíu

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. LET/Tristan Jones
Valdís Þóra Jónsdóttir hefur lokið keppni á Oates Vic-mótinu í Ástralíu eftir slæman þriðja hring í nótt.

Valdís Þóra fór hringinn á 79 höggum, sex höggum yfir pari Beach vallarins, sem skilaði henni jafnri í 53.sæti. Það þýðir að hún er úr leik og keppir því ekki á lokahring mótsins á morgun.

Til að komast í gegnum seinni niðurskurð mótsins hefði Valdís þurft að enda á meðal 30 efstu.

Mótið er hluti af LET Evrópumótaröðinni, sterkustu mótaröð í Evrópu og er sérstakt að því leyti að  Evrópumótaröð karla keppir á sama velli á sama tíma. Það sem meira er að þá er verðlaunaféð einnig jafnt sem þekkist ekki annars staðar.

 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×