Golf

Fowler leiðir fyrir lokahringinn í Phoenix

Þúsundir manna fylgjast með Rickie setja niður pútt í Phoenix.
Þúsundir manna fylgjast með Rickie setja niður pútt í Phoenix. Vísir/getty
Rickie Fowler náði forskotinu á Waste Management Phoenix Open golfmótinu í Arizona í gærkvöldi með því að enda hringinn á þremur fuglum í röð á lokaholunum en hann er með eitt högg í forskot á næstu menn.

Um er að ræða mótið með mestu aðsókn í heiminum en rúmlega 212 þúsund manns voru mættir í gær til að fylgjast með þriðja degi mótsins og fá áhorfendur aðeins lausari taum en á venjulegum golfmótum.

Hafa tæplega 650 þúsund manns séð fyrstu þrjá dagana en búast má við að áhorfendamet verði sett á lokadeginum í dag.

Fékk Rickie alls fimm fugla á hringnum, þar af fjóra á síðustu fimm holunum og tapaði aðeins einu höggi. Kom hann í hús á fjórum höggum undir pari á deginum og alls 199 höggum, fjórtán höggum undir pari.

Justin Thomas byrjaði daginn af krafti með sex fuglum í röð en þrjár slakar holur undir lokin þýða að hann er átta höggum eftir efstu kylfingum og var baulað á hann á sextándu holu eftir tvöfaldan skolla.

Jon Rahm og Chaz Reavie sem léku með Arizona State háskólanum í háskólagolfinu eru ásamt Bryson DeChambeu einu höggi á eftir Fowler en Phil Mickelson sem lék einnig með Arizona State er tveimur höggum eftir þeim.

Lokadagur mótsins er í beinni útsendingu á Golfstöðinni og hefst bein útsending klukkan 18:00.

Bestu tilþrifin á 16. holu: Allt það helsta frá degi þrjú:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×