Golf

Gal um dans hennar og Ólafíu: Eigum miklu fleiri myndbönd og þau eru öll frekar fyndin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Sandra Gal og Jón Ragnar Jónsson.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Sandra Gal og Jón Ragnar Jónsson. Instagram/olafiakri
Sérstakt samband tveggja kylfinga á bandarísku mótaröðinni var til umfjöllunnar í hlaðvarpsþætti LPGA-deildarinnar en önnur þeirra er Íþróttamaður ársins 2017, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.

Hin þýska Sandra Gal er mjög góð vinkona Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur og þær tóku meðal annars báðar þátt í góðgerðarmóti hvorrar annarrar á síðasta ári.

Það sem hefur einnig vakið athygli á samfélagsmiðlunum þegar þær eru að dansa saman og skemmta um leið sér og öðrum.

Sandra Gal var gestur í hlaðvarpsþættinum „On the Tee“ á heimasíðu LPGA-mótaraðarinnar. Hún var spurð út í danspartý hennar og Íþróttamanns ársins.







Ólafía Þórunn og Sandra Gal voru þar að dansa saman í Víetnam. Þáttarstjórnandinn Amy Rogers hafði mjög gaman af myndböndunum eins og fleiri. „Fólk elskaði þetta og við fengum mjög mikla umferð á síðunni okkar. Þið voruð svo fyndnar,“ sagði Amy Rogers.

„Guð minn góður. Við eigum svo mikið meira af myndböndum af okkur saman og erum bara búnar að birta tvö. Þau eru öll frekar fyndin og við höfðum svo gaman af þessu,“ sagði Sandra Gal.

„Við þurfum að fá smá frí eftir að hafa verið að spila stanslaust í þrjár eða fjórar vikur. Við ákváðum því að skella okkur til Víetnam,“ sagði Sandra Gal.

„Við erum báðar með þessa klikkuðu skapandi hlið á okkur og við fórum bara að dansa við tónlist,“ sagði Sandra Gal en viðtalið við hana er hér fyrir neðan og umfjöllun hennar um Ólafíu hefst eftir rúmar 35 mínútur af þættinum.







Hér fyrir neðan má síðan sjá þessi frábæru myndbönd af samfélagsmiðlum Ólafíu og Söndru Gal.



 
Channeling our inner badass @thesandragal #danceyourheartout

A post shared by Ólafía Kristinsdóttir (@olafiakri) on Nov 2, 2017 at 7:56am PDT














Fleiri fréttir

Sjá meira


×