Golf

Romo fær að spila á PGA-móti

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Spieth segir hér Romo til á golfvellinum.
Spieth segir hér Romo til á golfvellinum. vísir/getty
Fyrrum NFL-leikstjórnandinn Tony Romo hefur fengið leyfi til þess að taka þátt á PGA-móti í lok mars. Hann ætlar sér að standa í atvinnumönnunum á mótinu.

Romo er afar hæfur kylfingur með 0,3 í forgjöf. Hann hefur oft spilað með þeim bestu og staðið sig vel. Romo hefur lagt meira púður í golfið eftir að hann hætti í amerískum fótbolta og fór að vinna sem sjónvarpsmaður hjá CBS.

Margir eru ekki hrifnir af því að Romo fái að taka þátt í mótinu en það hneyksluðust líka margir er körfuboltakappinn Stephen Curry fékk að spila á PGA-móti í fyrra. Curry tróð upp í efasemdarmenn með því að spila báða sína hringi á 74 höggum.

„Hann vill vinna atvinnumennina sem eru með honum í holli. Hann telur sig geta unnið mót ef hann spilar á móti okkur. Þannig er sjálfstraustið hans,“ sagði besti kylfingur heims, Jordan Spieth, sem hefur spilað lengi með Romo í Dallas.

„Stutta spilið hans er frábært. Hann er að jarða pútt af löngu færi á nánast hverri holu. Það er mjög vel gert. Ef hann finnur sig þá verður hann mjög heitur. Vöðvaminnið og hæfileikarnir eru það miklir.“

Romo er að spila á mótinu í Pebble Beach sem hófst í gær og er í beinni á Golfstöðinni. Þar fá áhugamenn að spila með atvinnumönnum.

Hér að neðan má sjá hvaða þekktu andlit spila á mótinu. Innan sviga er nafn atvinnukyfingsins sem viðkomandi stjarna spilar með.

Bret Baier (Russell Henley)

Carson Daly (Ken Duke)

Tom Dreesen

Josh Duhamel (Colt Knost)

Larry Fitzgerald (Kevin Streelman)

Colt Ford (Brian Gay)

Wayne Gretzky (Dustin Johnson)

Chris Harrison (Jason Day)

Toby Keith (Steve Stricker)

Thomas Keller (Trey Mullinax)

Charles Kelley (Kevin Kisner)

Huey Lewis (Peter Jacobsen)

Pat Monahan (Zac Blair)

Bill Murray (D.A. Points)

Chris O’Donnell (Luke Donald)

Jake Owen (Jordan Spieth)

Alfonso Ribeiro (William McGirt)

Aaron Rodgers (Jerry Kelly)

Kelly Rohrbach (Gary Woodland)

Ray Romano (Tom Lovelady)

Tony Romo (Will Zalatoris)

Joe Don Rooney (Kevin Chappell)

Darius Rucker (Chris Stroud)

Alex Smith (Mackenzie Hughes)

Larry the Cable Guy (Keith Mitchell)

Justin Verlander (Russell Knox)

Clay Walker (Kelly Kraft)

Steve Young (Kevin Na)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×