Handbolti

Gott að vera örvhentur í Olís deild karla

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Teitur Örn Einarsson er sá markahæsti í Olís deildinni þegar leikmenn koma til baka úr fríinu.
Teitur Örn Einarsson er sá markahæsti í Olís deildinni þegar leikmenn koma til baka úr fríinu. Vísir/Eyþór
Fimm af sjö markahæstu leikmönnum Olís deildar karla í handbolta nota vinstri höndina við að setja boltann í mark andstæðinganna. Karladeildin fer aftur af stað í kvöld eftir langt Jóla- og EM-frí.

HBstatz heldur vel utan um alla tölfræði í Olís deild karla í vetur og þar má meðal annars sjá hvaða leikmenn hafa skorað flest mörk í deildinni til þessa í vetur.

Tveir leikmenn hafga náð að komast yfir hundað marka múrinn og það eru Selfyssingurinn Teitur Örn Einarsson og Fjölnismaðurinn Kristján Örn Kristjánsson. Báðir eru þeir ungir og örvhentir en þeir eru líka með góða forystu eftir fjórtán fyrstu umferðirnar.

Teitur Örn hefur þriggja marka forystu á Kristján Örn og munar þar mestu um fjórtán marka leik hans á móti einmitt Kristjáni og félögum hans í Fjölni.

Árni Bragi Eyjólfsson hjá Aftureldingu er í þriðja sætinu, sautján mörkum á eftir Teiti og fjórtán mörkum á eftir Kristjáni. Árni Bragi er örvhentur eins og þeir tveir efstu.

Markahæsti rétthenti leikmaðurinn er Haukamaðurinn Hákon Daði Styrmisson sem skipar fjórða sætið á listanum. Liðsfélagi hans Daníel Ingason, sem er í sjötta sætinu, er eini hinn rétthenti leikmaðurinn í hópi þeirra sjö efstu.

Eyjamaðurinn Theodór Sigurbjörnsson var markakóngur deildarinnar á síðasta tímabili en hann er nú 27 mörkum á eftir efsta manni. Theodór missti reyndar af tveimur leikjum en hann er í þriðja sæti á listanum yfir flest mörk að meðaltali.

Markahæstu leikmenn Olís deildar karla:

(Tölur frá HBstatz)

1. Teitur Örn Einarsson, Selfossi     106 mörk (7,57 mörk í leik)

2. Kristján Örn Kristjánsson, Fjölni     103 (7,36)

3. Árni Bragi Eyjólfsson, Aftureldingu     89 (6,36)

4. Hákon Daði Styrmisson, Haukum     86 (6,14)

5. Einar Rafn Eiðsson, FH     83 (5,93)

6. Daníel Ingason, Haukum     82 (6,31)

7. Theodór Sigurbjörnsson, ÍBV     79 (6,58)

8. Anton Rúnarsson, Val     78 (5,57)

9. Bergvin Þór Gíslason, ÍR     77 (5,50)

10. Ásbjörn Friðriksson, FH     77 (5,50)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×