Eigendur Atlantsolíu setja félagið í formlegt söluferli Kristinn Ingi Jónsson skrifar 10. janúar 2018 10:30 Atlantsolía rekur 19 sjálfsafgreiðslustöðvar á landinu öllu. Vísir/Anton Brink
Eigendur olíufélagsins Atlantsolíu, sem rekur nítján sjálfsafgreiðslustöðvar á landinu öllu, hafa sett félagið í formlegt söluferli. Samkvæmt heimildum Markaðarins hafa nokkrir fjárfestar sýnt félaginu áhuga. Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu, staðfestir í samtali við Markaðinn að félagið hafi verið sett í formlegt söluferli. Vonast hún til þess að málin skýrist frekar í næsta mánuði. Að öðru leyti segist hún ekki geta tjáð sig um söluferlið á þessari stundu. Ráðgjafarfyrirtækið Deloitte hefur umsjón með ferlinu. Eigendur Atlantsolíu, sem er minnsta olíufélagið á íslenska markaðinum, eru Guðmundur Kjærnested og Bandaríkjamaðurinn Brandon Charles Rose. Atlantsolía var stofnuð sumarið 2002 og var fyrsta bensínstöð félagsins opnuð ári síðar.Greint var frá því í Markaðinum í október á síðasta ári að eigendurnir könnuðu mögulega sölu á öllu hlutafé félagsins. Það kæmi til vegna áhuga sem innlendir fjárfestar hefðu sýnt því. Hagnaður Atlantsolíu árið 2016 nam rúmlega 203 milljónum króna borið saman við hagnað upp á 50 milljónir árið áður. Heildarvelta félagsins dróst hins vegar saman um 680 milljónir og var samtals 4.638 milljónir í fyrra.Fréttin birtist fyrst í Markaðinum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál.
Mest lesið Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Viðskipti innlent Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Viðskipti innlent Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Viðskipti innlent Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Viðskipti innlent Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Aukið atvinnuleysi Sjá meira