Erlent

Saka Catherine Deneuve um fyrirlitningu í garð þolenda kynferðisofbeldis

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Björk og Deneuve saman á kvikmyndahátíðinni í Cannes þegar Dancer in the Dark var frumsýnd. Eftir að ásakanirnar á hendur Weinstein komu fram steig Björk fram og lýsti áreitni leikstjórans Lars von Trier en Deneuve  varar við hreintrúarstefnu, eða púrítanisma, í kynferðismálum í bréfi sem hún skrifar ásamt öðrum konum vegna MeToo-byltingarinnar.
Björk og Deneuve saman á kvikmyndahátíðinni í Cannes þegar Dancer in the Dark var frumsýnd. Eftir að ásakanirnar á hendur Weinstein komu fram steig Björk fram og lýsti áreitni leikstjórans Lars von Trier en Deneuve varar við hreintrúarstefnu, eða púrítanisma, í kynferðismálum í bréfi sem hún skrifar ásamt öðrum konum vegna MeToo-byltingarinnar. vísir/getty
Ein þekktasta leikkona Frakka, Catherine Deneuve, er ein af 100 frönskum konum sem skrifa undir opið bréf þar sem segir að menn eigi rétt á því að reyna við konur og að það sé ekki sama að nauðga og að reyna við konu, jafnvel þó karlinn sé ágengur í því.

 

Bréfið hefur vakið nokkra athygli og umræðu í Frakklandi, að því er fram kemur á BBC. Þannig skrifuðu 30 femínistar undir nokkurs konar svarbréf og saka Deneuve og hinar 99 konurnar um fyrirlitningu í garð þolenda kynferðisofbeldis og að vilja „setja lok“ á alla skandalana sem komið hafa upp í tengslum við valdamikla menn, ekki hvað síst í skemmtanabransanum.

Í bréfinu sem Deneuve skrifar undir vara konurnar við hreintrúarstefnu, eða púrítanisma, í kynferðismálum og segja að þær harmi allar þær fordæmingar sem komið hafa fram í garð karla eftir að greint var frá ásökunum á hendur Harvey Weinstein um kynferðislega áreitni og ofbeldi. Að mati kvennanna skerða slíkar „nornaveiðar“ kynfrelsi.

Ekki glæpur að reyna að draga einhvern á tálar

„Nauðgun er glæpur en að reyna að draga einhvern á tálar, jafnvel oft eða klaufalega er það ekki. Það að karlmenn sýni af sér herramennsku er ekki heldur árás af hálfu feðraveldisins,“ segir í bréfinu.

Þá segir þar jafnframt að mönnum hafi verið refsað, og þeir jafnvel misst vinnuna „fyrir það eitt að snerta hnéð á einhverjum eða að reyna að stela kossi.“

Í bréfinu kemur fram að konurnar sem undir það skrifa telja það nauðsynlegt að tala um misnotkun af hálfu valdamikilla. Þær líta þó einnig svo á að fordæmingarnar séu orðnar „stjórnlausar“ og að þetta valdi því að konur séu álitnar vanmáttugar og eilífðar fórnarlömb. Þær segjast ekki finna sig í þessum femínisma.

Catherine Deneuve er langþekktust þeirra kvenna sem skrifa undir bréfið. Á meðal annarra sem undir það rita eru leikkonan Christine Boisson og rithöfundurinn Catherine Millet.

Deneuve lék meðal annars á móti Björk í kvikmynd danska leikstjórans Lars von Trier, Dancer in the Dark. Eftir að ásakanirnar á hendur Weinstein komu fram steig Björk fram og sagði frá kynferðislegri áreitni von Trier í sinn garð við gerð myndarinnar.


Tengdar fréttir

Finnst hún þurfa að bera ábyrgð

Nýjasta plata Bjarkar Guðmundsdóttur sem kemur út í næstu viku fjallar um tímamót af ýmsu tagi. Á plötunni kemur Björk inn á þau mál sem eru henni hugleikin, svo sem umhverfismál, jafnrétti og femínisma. Hún segir að með nýju plötunnni hafi hún þá fundið tilefni til að opna sig um áreitni sem hún sjálf varð fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×