Enski boltinn

Sanchez „frábær, en erfiður“

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Alexis Sánchez.
Alexis Sánchez. Vísir/Getty
Það þykir orðið aðeins tímaspursmál hvenær Alexis Sanchez yfirgefi herbúðir Arsenal, en hann fór ekki með liðinu til Bournemouth í dag. Arsene Wenger sagðist hafa skilið hann eftir því leikmaðurinn hafi verið svo óskýr í því hvað væri að gerast með hans framtíð.

Ritstjóri fótboltafrétta hjá enska miðlinum The Sun segir að hver sá sem landi Sanchez fái frábæran leikmann, en erfiðan karakter.

„Hann hefur verið erfiður. Þú vilt ekki að leikmennirnir séu eins og vélmenni og það þarf sambland af karakterum til þess að búa til gott lið,“ sagði Charlie Wyett í liðnum Sunday Supplement hjá Sky Sports.

„En það eru nokkrir leikmenn Arsenal sem eru orðnir þreyttir á Sanchez og hegðun hans síðustu tímabil, ekki bara síðustu mánuði. En ég held líka að nokkrir hafi mjög mikla virðingu fyrir honum og vilji hafa hann í liði sínu, svo ég held að liðið sé nokkuð sundrað yfir þessu.“

„Hann er nokkuð krefjandi karakter. Hann átti það til að sýna skýrt hversu ósáttur hann var með það að vera tekinn út af og þegar hann var ekki í byrjunarliði talaði hann ekki við Wenger næstu tvo, þrjá daga,“ sagði Wyett.

Fyrir helgi sögðu enskir fjölmiðlar frá því að Manchester City vildi ekki borga uppsett verð fyrir Sanchez og ætli því ekki að kaupa hann í janúar heldur freista þess að fá Sílemanninn frítt í sumar. Hins vegar er talinn áhugi úr herbúðum Manchester United fyrir leikmanninum og að Ed Woodward sé tilbúinn til þess að opna budduna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×