Erlent

Biðja Trump og ESB að koma sér til bjargar

Samúel Karl Ólason skrifar
Nasr Hariri, æðsti samningamaður uppreisnarmanna.
Nasr Hariri, æðsti samningamaður uppreisnarmanna. Vísir/AFP
Uppreisnarmenn í Sýrlandi segja að ef vesturveldin komi þeim ekki til bjargar og beiti Bashar al Assad, forseta Sýrlands, og bandamenn hans í Rússlandi og Íran þrýstingi muni blóði óbreyttra borgara verða úthellt áfram. Nasr Hariri, æðsti samningamaður uppreisnarmanna, kallar eftir aðstoð Donald Trump og leiðtoga Evrópusambandsins eins og Angelu Merkel og Emmanuel Macron.

„Ég vil spyrja öll þau ríki sem lofuðu stuðningi við sýrlensku þjóðina og viðleitni þeirra til að koma á lýðræði og friði: Af hverju stóðuð þið ekki við loforð ykkar?“ sagði Hariri við blaðamann Reuters.



Átökin í Sýrlandi hafa gengið á í rúm sjö ár og allar pólitískar friðarviðræður hafa ekki borið árangur. Undanfarin tvö ár hefur Assad-liðum vaxið ásmegin með stuðningi Rússlands og Íran. Sýrlenskir Kúrdar hafa með stuðningi Bandaríkjanna og annarra ríkja sömuleiðis náð stórum hluta landsins á sitt vald. Íslamska ríkið hefur tapað nánu öllu sínu yfirráðasvæði til Kúrda og til stjórnarhersins.

Þá hafa uppreisnarmenn einnig látið verulega eftir og eru margar fylkingar þeirra jafnvel orðnar samofnar vígahópum sem tengjast al-Qaeda. Með það í huga hafa vesturveldin gefið eftir að undanförnu varðandi þá kröfu að Assad verði að fara frá völdum til að tryggja frið í Sýrlandi.

Í nýjum viðræðum hafa uppreisnarmenn þó ítrekað það skilyrði. Enginn friður verði á meðan Assad sé við völd og því hefur ríkisstjórnin lýst því yfir að viðræður þessar muni engum árangri skila.

Samkvæmt frétt Reuters telur Hariri þó að vesturveldin geti beitt Assad nægum þrýstingi til að fá hann að samningaborðinu. Að áðurnefndir leiðtogar geti sameinað alþjóðasamfélagið og tryggt frið og stöðugleika í Sýrlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×