Enski boltinn

Walcott kominn til Everton

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Theo Walcott verður meira í bláu á næstunni
Theo Walcott verður meira í bláu á næstunni Vísir/Getty
Everton hefur gengið frá kaupum á Theo Walcott frá Arsenal. Félagið staðfesti þetta í dag.

Walcott skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Everton. Samkvæmt fjölmiðlum á Englandi er kaupverðið um 20 milljónir punda.

Englendingurinn, sem er28 ára gamall, spilaði 397 leiki fyrir Arsenal og skoraði í þeim 108 mörk.

Sam Allardyce hefur nú þegar fest kaup á tyrkneska framherjanum Cenk Tosun, en hann vill styrkja framlínu og sóknarafl Everton sem hefur aðeins skorað eitt mark í síðustu fimm deildarleikjum.










Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×