Körfubolti

Halldór Garðar í bann og verður ekki með í kvöld

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Halldór Garðar í leik með Þórsurum í vetur
Halldór Garðar í leik með Þórsurum í vetur Vísir/Anton
Halldór Garðar Hermannsson hefur verið dæmdur í eins leiks bann fyrir hegðun sína í leik Þórs Þorlákshafnar og Njarðvíkur í Domino's deild karla.

Málið var tekið fyrir á fundi Aga- og úrskurðanefndar KKÍ í vikunni.

Halldór Garðar var rekinn úr húsi í Ljónagryfjunni eftir að hafa fengið tvær óíþróttamannslegar villur. Seinni villuna fékk hann fyrir að bregða fæti fyrir Majcek Baginski, leikmann Njarðvíkur.

Bannið tekur gildi á hádegi í dag og því mun Halldór Garðar ekki vera með Þórsurum í leiknum við Hauka á heimavelli í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×