Innlent

Ánægð með að hafa getað varpað ljósi á íslenskar bókmenntir í Svíþjóðarheimsókninni

Atli Ísleifsson skrifar
Silvía Svíadrottning og Eliza forsetafrú ræða við starfsmenn Borgarbókasafns Stokkhólmsborgar.
Silvía Svíadrottning og Eliza forsetafrú ræða við starfsmenn Borgarbókasafns Stokkhólmsborgar. Vísir/Atli
Eliza Reid forsetafrú segist vera þakklát og ánægð með að hafa fengið tækifæri til að varpa sviðsljósinu að bókmenntum, þýðingum og sjálfbærni í ferðamennsku í opinberri heimsókn forsetahjónanna til Svíþjóðar. Allt séu þetta mál sem eru hennar hjartans mál.

Eliza flutti ávarp um bókmenntir og þýðingar á samkomu í Borgarbókasafni Stokkhólms á miðvikudaginn, á fyrsta degi heimsóknarinnar. Yfirskrift erindisins var Books build bridges, eða Bækur byggja brýr, þar sem hún ræddi um mikilvægi þýðinga fyrir íslenskar bókmenntir.

Hún segir það hafa verið mjög þægilegt að vera í Svíþjóð. „Við erum svo góðir vinir – Svíar og Íslendingar. Þessi heimsókn á bara eftir að styrkja það. Það er alltaf svo gaman að fara í svona opinbera heimsókn þar sem dagskráin er svo fjölbreytt. Við erum bara á landinu í þrjá daga en maður lærir margt á þessum stutta tíma. Þetta hefur verið mjög skemmtilegt og vonandi getum við komið öllum þessum skilaboðum á framfæri heima á Íslandi.“

Sjá einnig: Íslendingar lögðu nýjar línur í konunglegu veislustandi

Eliza Reid forsetafrú flytur erindi í glæsilegum hringsal Borgarbókasafns Stokkhólmsborgar.Vísir/Atli
Sjálfbærni innan ferðamennskunnar

Eliza segist hafa mikinn áhuga á bókmenntum og að kynna íslenskar bókmenntir erlendis. „Ég var mjög þakklát að taka þátt í pallborðinu á miðvikudaginn í Borgarbókasafni Stokkhólms um bókmenntamenningu og þýðingarmál. Aðeins að varpa ljósinu á þau mikilvægu mál. Á viðburði Íslandsstofu [sem fram fór í gær] vorum við svo að fjalla um ferðamennsku og sjálfbærni innan hennar. Sem sérstakur sendiherra ferðamála og sjálfbærrar þróunar hjá Sameinuðu þjóðunum þá er gott að geta kynnt hvað Íslendingar eru að gera og hvernig við erum að gera margt nýtt til að byggja upp sjálfbærni í ferðamennsku.“

Góðar og hlýjar móttökur

Forsetafrúin segir að konungshjónin sænsku séu vingjarnleg og hlý. Íslenska sendinefndin hafi fengið góðar og hlýjar móttökur. „Við höfum átt áhugavert spjall við þau. Það er alltaf áhugavert að hitta nýtt fólk. Þau hafa komið nokkrum sinnum til Íslands og þekkja vel til. Viktoría krónprinsessa og Daníel prins komu til Íslands síðast árið 2014 og þau eru af þeirri kynslóð að vera með börn á sama aldri og okkar börn. Við höfðum því margt að ræða.“

Opinberri heimsókn forsetahjónanna til Svíþjóð lauk síðdegis í dag, en dagskrá var í Uppsölum síðasta daginn. Afhenti Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra þar sænsku þjóðinni 400 sett af Íslendingasögunum í fimm bindum að gjöf. Menningarmálaráðherrann sænski, Alice Bah Kuhnke, veitti gjöfinni viðtöku.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×