Enski boltinn

Iwobi sektaður fyrir partýstand

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Alex Iwobi í leik með Arsenal
Alex Iwobi í leik með Arsenal vísir/getty
Alex Iwobi á von á að verða sektaður af Arsenal ef Arsene Wenger fær sönnun fyrir því að hann hafi verið í partýi tæpum tveimur sólarhringum fyrir bikarleik Arsenal gegn Nottingham Forest.

Iwobi er 21 árs gamall og alinn upp í akademíu Arsenal. Myndir voru teknar af honum á viðburði í London á laugardagskvöld og fara sögur af því að hann hafi verið að skemmta sér vel fram á sunnudagsmorgun.

Wenger sagði hins vegar að partýið hafi átt sér stað á föstudagskvöld og liðið hafi gist saman á hóteli aðfaranótt sunnudags.

„Hann verður sektaður. Þetta var ekki kvöldið fyrir leikinn heldur 48 klukkustundum fyrir leik, en þetta er óásættanlegt. Ég mun ræða við hann um hegðun hans,“ sagði Wenger.

Arenal er ríkjandi bikarmeistari á Englandi, en datt út gegn 1. deildar liði Forest í þriðju umferðinni á sunnudag.

„Það þarf að taka því sem maður les í blöðunum með fyrirvara. Þau láta þetta hljóma eins og hann hafi verið að taka inn eiturlyf, en ég held nú ekki að það sé rétt. Hann var í partýi, en hversu lengi? Það er mjög mikilvægt að hafa það á hreinu, eftir það mun ég ákveða hvað gerist næst.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×