Enski boltinn

Þrenna Vietto sá um Las Palmas

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Luciano Vietto
Luciano Vietto vísir/getty
Luciano Vietto skoraði þrennu og tryggði Valencia sæti í undanúrslitum spænsku bikarkeppninnar í fótbolta í kvöld.

Valencia tók á móti Las Palmas í seinni leik liðanna í einvígi þeirra um sæti í undanúrslitum. Fyrri leiknum hafði lokið með 1-1 jafntefli á heimavelli Palmas.

Vietto opnaði markareikning sinn á 30. mínútu og bætti svo við öðru marki sínu og öðru marki Valencia stuttu eftir leikhlé.

Serbinn Nemanja Maksimovic fór langt með að tryggja Valencia sigurinn á 54. mínútu þegar hann skoraði þriðja mark Valencia. Vietto fullkomnaði svo þrennuna á 66. mínút leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×