Enski boltinn

Upphitun: Lundúnaslagur á Selhurst Park

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Crystal Palace tekur á móti Arsenal í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Palace er taplaust í síðustu átta leikjum sínum og situr í 16. sæti deildarinnar. Með sigri í kvöld komast strákarnir hans Roys Hodgson upp í 13. sætið.

Palace hefur gengið illa gegn Arsenal á Selhurst Park á undanförnum árum. Palace vann reyndar heimaleikinn gegn Skyttunum í fyrra með þremur mörkum gegn engu. Þar á undan hafði Palace leikið 11 deildarleiki í röð gegn Arsenal á heimavelli án þess að vinna.

Með sigri í kvöld jafnar Arsenal Tottenham að stigum og verður einu stigi frá Liverpool sem er í 4. sætinu.

Leikur Crystal Palace og Arsenal hefst klukkan 20:00 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×