Innlent

Slysið undirstriki nýjan vanda ferðaþjónustunnar

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Vignir Þór Siggeirsson er þakklátur öllum þeim sem unnu að björguninni í gær.
Vignir Þór Siggeirsson er þakklátur öllum þeim sem unnu að björguninni í gær. Vísir/Vilhelm
Talsmaður Hópferðabíla Akureyrar segir ökulag ferðamanna á bílaleigubílum vera einn stærsta vandann sem íslensk ferðaþjónusta stendur frammi fyrir í dag. Þannig sé orsaka rútuslyssins á Suðurlandsvegi í gær meðal annars að leita í aksturslagi bílstjóra fólksbifreiðarinnar sem rúta fyrirtækisins hafnaði á með þeim afleiðingum að einn lést og tólf slösuðust alvarlega.

Talsmaðurinn, Vignir Þór Siggeirsson, segist í færslu á Facebook vera þakklátur öllum þeim viðbragðsaðilum og íbúum Skaftárhrepps sem komu að björguninni í gær. Hann harmar slysið og segir hug allra starfsmanna Hópferðabíla Akureyrar vera hjá aðstandendum stúlkunnar sem lést, rétt eins og hjá bílstjóra fyrirtækisins og öðrum sem slösuðst í Eldhrauni.

Segist hann hafa nefnt það við löggæslumenn á vettvangi í gær að íslensk ferðaþjónusta ætti við nýtt vandamál að stríða. „Bílstjórar hefðu frá fyrstu dögum bílamenningar barist við veður, snjó, hálku og lausagöngu búfjár,“ segir Vignir og bætir við að sum þessara vandamála væru úr sögunni en önnur ekki. Hins vegar búi ferðaþjónustan við eitt stórt og mikið vandamál sem Vignir áætlar að sé hættulegasti farartálmi og slysavaldur á íslenskum þjóðvegum.

Sjá einnig: Kínversk kona á þrítugsaldri lést í slysinu

„Það eru skyndiákvarðanir ökumanna á bílaleigubílum sem snarhemla á miðjum þjóðvegi ef eitthvað áhugavert sést eða gerist. Eða þá að þeir átta sig á að þeir eru að fara ranga leið og taka U-beygju á vegi fyrirvararlaust án þess að hugsa eða sjá fyrir sér aðra umferð í kringum sig,“ segir Vignir í færslunni.

Hann kallar jafnframt eftir meira eftirliti með umferð á milli Víkur í Mýrdal og Jökulsárslón. Þó svo að leiðin sé undir umferðarmörkum Vegagerðarinnar um hálkuvarnir í efsta flokki - „verður Vegagerðin að átta sig á því að sennilega er yfir 70% af farartækjum þeirrar talningar með alls-óvana ökumenn undir stýri!“ segir Vignir. Tekur hann þar í sama streng og Sandra Brá Jóhannsdóttir, sveitarstjóri Skaftárhrepps, sem sagði í gær að það væri furða að vegurinn austan Víkur sé í svo lágum þjónustuflokki í ljósi umferðarinnar um veginn.

Vignir lýkur færslu sinni á því að brýna fyrir starfsmönnum ferðaþjónustunnar að hleypa ekki farþegum út úr bíl á slysstað. „Farþegar eiga ekkert erindi inn á slysstað, því miður gerðist það í dag á slysstað að rúta hleypti öllum sínum farþegum út úr bílnum sem tafði fyrir og raskaði verksummerkjum á slysstað. Við hljótum öll að vera sammála um að halda farþegum inn í bíl, þó að leiðsögumaður og bílstjóri geti komið til aðstoðar á slysstað,“ segir talsmaður Hópferðabíla Akureyrar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×