Handbolti

Átta mörk Ólafs dugðu ekki til

Ólafur Bjarki Ragnarsson.
Ólafur Bjarki Ragnarsson. Vísir
Ólafur Bjarki Ragnarsson átti stórleik fyrir Westwien sem tapaði fyrir Sparkasse Schwaz í austurríska handboltanum í dag.

Ólafur var markahæstur í liði Westwien með átta mörk. Viggó Kristjánsson skoraði 3 mörk fyrir Westwien, þar á meðal úr eina vítaskoti liðsins í leiknum.

Leikurinn byrjaði ágætlega fyrir Hannes Jónsson og hans menn í Westwien, en þeir voru með yfirhöndina framan af. Heimamenn unnu sig þó inn í leikinn og var jafnt 14-14 í hálfleik.

Heimamenn í Schwaz hafa fengið ágæta ræðu yfir sér í leikhléi, en þeir komu mun sterkari til leiks í seinni hálfleik og náðu undirtökunum í leiknum.

Svo fór að lokum að Westwien tapaði með átta mörkum, 34-26.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×