Enski boltinn

Sjáðu markið sem skaut Burnley upp í Meistaradeildarsæti | Myndbönd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ashley Barnes fagnar marki sínu gegn Stoke.
Ashley Barnes fagnar marki sínu gegn Stoke. vísir/getty
Burnley skaust upp í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 1-0 sigri á Stoke City á Turf Moor í gær. Ashley Barnes skoraði eina mark leiksins þegar mínúta var eftir af venjulegum leiktíma.

Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn fyrir Burnley sem hefur unnið sex 1-0 sigra á tímabilinu.

Crystal Palace komst upp úr fallsæti með dramatískum sigri á Watford, 2-1, á heimavelli. Palace var 0-1 undir þegar mínúta var til leiksloka. En mörk frá varamönnunum Bakary Sako og James McArthur tryggðu Palace dýrmætan sigur.

Willian skoraði eitt mark og lagði upp tvö í öruggum 1-3 sigri Chelsea á Huddersfield á útivelli. Með sigrinum jafnaði Chelsea Manchester United að stigum í 2. sæti deildarinnar.

Hér fyrir neðan má sjá mörkin úr leikjunum í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Burnley 1-0 Stoke
Crystal Palace 2-1 Watford
Huddersfield 1-3 Chelsea
Þriðjudagsuppgjör

Tengdar fréttir

Auðvelt hjá Chelsea gegn Huddersfield

Chelsea komst í kvöld upp að hlið Man. Utd í öðru til þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar með öruggum 3-1 sigri á Huddersfield.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×