Handbolti

Íslendingarnir í Árósum frábærir gegn Kolding

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ómar Ingi var magnaður í kvöld.
Ómar Ingi var magnaður í kvöld. vísir/afp
Íslendingarnir þrír í liði Århus áttu mjög fínan leik er liðið vann sterkan útisigur, 25-28, gegn Kolding.

Sigvaldi Guðjónsson var þeirra sterkastur en hann skoraði sjö mörk úr sjö skotum. Ómar Ingi Magnússon einnig magnaður með tvö mörk og fimm stoðsendingar. Róbert Gunnarsson skoraði svo þrjú mörk á línunni.

Ólafur Gústafsson skoraði tvö mörk fyrir Kolding úr tveimur skotum. Bo Spellerberg þeirra markahæstur með níu mörk.

Århus komst upp að hlið Kolding með sigrinum en liðin eru í sjöunda til áttunda sæti.

Tandri Már Konráðsson komst ekki á blað hjá Skjern sem vann fínan heimasigur, 33-29, á Ribe-Esbjerg og er enn í toppsæti dönsku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×