Innlent

Lögreglustjóri gætti ekki nægilega góðra stjórnunarhátta

Kjartan Kjartansson skrifar
Sigríður Björk vísaði meðal annars til kvartana og óróa innan fíkniefnadeildarinnar þegar hún ákvað að Aldís skyldi einbeita sér algerlega að innleiðingu á skipulagsbreytingum hjá lögregluembættinu.
Sigríður Björk vísaði meðal annars til kvartana og óróa innan fíkniefnadeildarinnar þegar hún ákvað að Aldís skyldi einbeita sér algerlega að innleiðingu á skipulagsbreytingum hjá lögregluembættinu. Vísir/Ernir
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, hafði heimild til að færa Aldísi Hilmarsdóttur, yfirmann fíkniefnadeildar, tímabundið til í starfi. Þetta er mat Héraðsdóms Reykjavíkur sem sýknaði ríkið af bótakröfum Aldísar. Dómarinn rakti hins vegar misbresti í samskiptum þeirra meðal annars til þess að lögreglustjóri hefði ekki gætt nægilega góðra stjórnunarhátta.

Aldís stefndi ríkinu vegna ákvörðunar Sigríðar Bjarkar um að færa sig tímabundið til starfi í janúar í fyrra. Tilfærsluna taldi Aldís jafngilda ólögmætri brottvikningu. Sakaði hún lögreglustjóra jafnframt um að hafa lagt sig í einelti með ýmsum hætti.

Héraðsdómur sýknaði ríkið af kröfum Aldísar í gær og taldi að lögreglustjóri hefði haft heimild til að breyta starfsskyldum hennar. Breytingin hefði verið tímabundin og ekki of íþyngjandi fyrir Aldísi. Þannig hafi hún til dæmis ekki lækkað í launum. Ákvörðun lögreglustjóra hafi byggst á málefnalegum sjónarmiðum.

Klofningur og órói innan fíkniefnadeildar

Tilfærsla Aldísar í starfi kom í kjölfar spennu í samskiptum hennar við lögreglustjóra. Hún virðist meðal annars hafa orsakast af hatrömmum deilum og klofningi innan fíkniefnadeildarinnar sem hafði verið til staðar áður en Aldís tók við henni.

Þannig var lögreglufulltrúi sem var náinn samstarfsmaður Aldísar rannsakaður vegna meintrar spillingar á tímabili. Vísaði lögreglustjóri meðal annars til þess þegar ákvörðunin var tekin um að breyta starfsskyldum Aldísar.

Aldís hefur verið í launalausu leyfi frá lögreglunni frá því að lögreglstjóri breytti starfsskyldum hennar í janúar í fyrra. Í dómnum kemur fram að hún starfi nú fyrir Vinnumálastofnun.Vísir/Eyþór
Fylking innan fíkniefnadeildarinnar var ósátt við náið starfssamband lögreglufulltrúans og Aldísar og töldu starfsmennirnir að hún hefði ýtt þeim til hliðar. Kvörtuðu nokkrir starfsmenn fíkniefnadeildarinnar undan Aldísi til lögreglustjóra.

Héraðsdómur dæmdi lögreglufulltrúanum rúmar tvær milljónir króna í skaðabætur í haust vegna ákvörðunar Sigríðar Bjarkar að leysa hann frá störfum á meðan rannsókn á honum stóð yfir. Í þeim dómi kom fram að rannsóknin á honum hafi frá upphafi byggst á órökstuddum ásökunum sem hafi virst eiga upptök sín í innanhússdeilum fíkniefnadeildarinnar.

Óróinn innan fíkniefnadeildarinnar og kvartanir nokkurra starfsmanna hennar voru einnig á meðal þess sem Sigríður Björk notaði til að rökstyðja að færa Aldísi tímabundið til í starfi.

Gagnrýnd fyrir að lesa upp úr tölvupósti Aldísar

Í stefnu Aldísar var því einnig haldið fram að Sigríður Björk hefði lagt hana í einelti og valdið henni vanlíðan á vinnustaðnum. Vísaði hún meðal annars til þess að lögreglustjóri hefði dregið að skipa sig í starf yfirlögregluþjóns, reynt að koma sér úr starfi með að bjóða starfskrafta hennar sérstökum saksóknara án þess að bera það undir hana, lesið upp úr tölvupóstum hennar fyrir framan aðra starfsmenn og vikið henni úr nefnd sem átti að velja inn nýja lögreglufulltrúa.

Þeim rökum hafnaði Héraðsdómur. Í dómnum kemur þó fram nokkur gagnrýni á hvernig Sigríður Björk hagaði samskiptum sínum við Aldísi. Héraðsdómur taldi ljóst að ekki hafi ríkt nægilegt traust á milli þeirra tveggja og því hafi skapast spenna í samskiptum þeirra.

„Að einhverju leyti þykir mega rekja þá misbresti til þess að lögreglustjóri hafi ekki í öllu tilliti gætt nægilega góðra stjórnunarhátta í þeim samskiptum, og þá einkum með því að upplýsa stefnanda ekki fyrir fram um efni fundar sem hún boðaði hana á 15. desember 2015 og lesa upphátt úr tölvupósti stefnanda í votta viðurvist,“ segir í dómnum.


Tengdar fréttir

Ummæli ölvaðra lögreglumanna talin rót spillingarásakana

Hópur starfsmanna fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem sökuðu lögreglufulltrúa um spillingu eru sagðir hafa lagt allt að því fæð á hann. Fulltrúinn vann skaðabótamál gegn ríkinu vegna ólögmætrar brottvikningar í dag.

Aldís fær engar bætur frá ríkinu

Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að Aldís ætti ekki rétt á skaðabótum vegna tilfærslu í starfi. Aldís krafðist 126 milljóna í bætur.

Segir lögreglustjóra hafa viljað rannsaka yfirmann fíkniefnadeildarinnar

Yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri, hafi viljað láta rannsaka Aldísi Hilmarsdóttur, þáverandi yfirmann fíkniefnadeildar, fyrir að hylma yfir með lögreglufulltrúa sem var til rannsóknar vegna spillingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×