Innlent

Aldís fær engar bætur frá ríkinu

Kjartan Kjartansson skrifar
Aldís Hilmarsdóttir þegar mál hennar var upphaflega tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í september.
Aldís Hilmarsdóttir þegar mál hennar var upphaflega tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í september. Vísir/Eyþór
Aldís Hilmarsdóttir fær engar skaðabætur frá íslenska ríkinu. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm sinn síðdegis og sýknaði ríkið í málinu. Þá var málskostnaður felldur niður.

Aldís, sem var yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, stefndi íslenska ríkinu vegna þeirrar ákvörðunar Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur, lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, um að færa sig til í starfi í janúar í fyrra.

Tilfærsluna taldi Aldís jafngilda ólögmætri brottvikningu úr starfi. Krafðist hún ógildingar ákvörðuninnar og 126 milljóna króna í skaðabætur, bæði vegna fjárhagslegs tjóns og annars. 

Hún sakaði lögreglustjóra jafnframt um einelti á vinnustað. Þannig hefði Sigríður Björk meðal annars lesið upp úr tölvupóstum hennar fyrir framan annað starfsfólk. Lögreglustjóri hafi einnig neitað Aldísi um andmælarétt. Ríkislögmaður fullyrti á móti að lögreglustjóri hafi haft fulla heimild til að breyta starfsskyldum Aldísar tímabundið.

Málið var upphaflega flutt í september en það þurfti að endurflytja í síðasta mánuði vegna þess að dómur hafði ekki verið kveðinn upp innan átta vikna.

Lögmaður Aldísar vildi ekki tjá sig um niðurstöðuna við dómsuppkvaðningu.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri ákvað að breyta starfsskyldum Aldísar. Það taldi Aldís jafngilda fyrirvaralausri brottvikningu.Vísir/Ernir
Blandaðist klofningi og spillingarásökunum innan fíkniefnadeildarinnar

Inn í mál Aldísar blandaðist rannsókn á meintri spillingu lögreglufulltrúa fíkniefnadeildarinnar sem var náinn samstarfsmaður hennar. Sá vann skaðabótamál gegn ríkinu vegna þess að hann var leystur frá störfum á meðan rannsóknin stóð yfir. Honum voru dæmdar rúmar tvær milljónir króna í bætur en ríkið áfrýjaði dómnum.

Rannsóknin á honum var síðar felld niður. Héraðsdómur taldi rannsóknina hafa aðeins byggst á órökstuddum ásökunum frá upphafi og að viðbrögð lögreglustjóra við þeim hafi verið óþörf og ólögmæt.

Fíkniefnadeildin hafði verið mikið í kastljósi fjölmiðla á þessum tíma en annar starfsmaður hennar var síðar sakfelldur fyrir spillingu. Vitni sem gáfu framburð í máli Aldísar lýstu því hvernig fíkniefnadeildin hefði logað stafnanna á milli vegna illdeilna á milli ólíkra hópa.

Í máli samfstarfsmanns Aldísar sem voru dæmdar bætur sagði Héraðsdómur að spillingarásakanir á hendur lögreglufulltrúanum hafi að líkindum ætt rætur sínar í persónulegri óvild annarra starfsmanna deildarinnar og „óvarlegum ummælum ölvaðra lögreglumanna á bar“ í návist aðila sem tengdust fíkniefnaheiminum.


Tengdar fréttir

Ummæli ölvaðra lögreglumanna talin rót spillingarásakana

Hópur starfsmanna fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem sökuðu lögreglufulltrúa um spillingu eru sagðir hafa lagt allt að því fæð á hann. Fulltrúinn vann skaðabótamál gegn ríkinu vegna ólögmætrar brottvikningar í dag.

Segir lögreglustjóra hafa viljað rannsaka yfirmann fíkniefnadeildarinnar

Yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri, hafi viljað láta rannsaka Aldísi Hilmarsdóttur, þáverandi yfirmann fíkniefnadeildar, fyrir að hylma yfir með lögreglufulltrúa sem var til rannsóknar vegna spillingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×