Golf

Tiger Woods snéri til baka með góðum hring: „Nú elska ég lífið“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tiger Woods þakkar Justin Thomas fyrir hringinn.
Tiger Woods þakkar Justin Thomas fyrir hringinn. Vísir/Getty
Tiger Woods lék í nótt sinn fyrsta golfhring í keppni í meira en 300 daga og það var ekki mikið hægt að kvarta yfir spilamennskunni hjá karlinum.

Woods lék fyrsta hringinn á Hero World Challenge mótinu á Bahamaeyjum á 69 höggum eða þremur höggum undir pari. Hann er aðeins þremur höggum á eftir efsta manni sem er Tommy Fleetwood.

Tiger hefur unnið fjórtán risatitla á ferlinum og er einn sá sigursælasti í sögunni. Lítið hefur gengið hjá honum síðustu ár þar sem hann hefur verið að glíma við meiðsli í baki.

Tiger er í áttunda sæti eftir 18 holur en hann talaði um það fyrir mótið að lokastaðan myndi ekki skipta hann miklu máli.

Hann er að koma til bakla eftir fjórðu bakaðgerðina í apríl og skandalinn í maí þegar hann var handtekinn fyrir að keyra undir áhrifum.

Woods þurfti að bíða í sex mánuði eftir aðgerðina þangað til að hann mátti fara að slá af fullum krafti. Hann byrjaði ekki á því að slá alvöru högg fyrr en um miðja október eða fyrir aðeins sex vikum síðan.

„Nú þegar mér líður eins og mér á að líða þá er erfitt að ímynda sér hvernig mitt líf var um tíma. Ég elska lífið núna,“ sagði Tiger Woods á blaðmannafundi fyrir mótið.

„Það var var gott að klára fyrsta hringinn og ég er bara þremur höggum frá efsta sætinu. Ég er mjög ánægður með að hafa náð rytmanum snemma á hringnum,“ sagði Tiger sem var með fimm fugla og tvo skolla á hringnum.

Regnbogi yfir Tiger Woods á hringnum í nótt.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×