Körfubolti

Langmest talað um LeBron James á Twitter

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
LeBron James.
LeBron James. vísir/getty
Það er oft gaman að rýna í tölfræðina á Twitter en síðan tímabilið í NBA-deildinni er langoftast talað um LeBron James, leikmann Cleveland, af öllum íþróttamönnum heims.

Alls er búið að tísta 5,2 milljón sinnum um LeBron síðan NBA-deildin hófst þann 17. október. Neymar er næstvinsælasta umræðuefnið en hann er langt á eftir LeBron með 3,2 milljón tíst.

Colin Kaepernick hefur ekki spilað ruðning lengi en hann er í samt í sjötta sæti listans með 2,1 milljón tíst og körfuboltapabbinn LaVar Ball kemur þar á eftir.

Hér að neðan má sjá þennan áhugaverða lista.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×