Viðskipti innlent

Gefa jólaljósum lengra líf með álendurvinnsluátaki

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, Líf Lárusdóttir, verkefnastjóri sölu- og markaðsmála Gámaþjónustunnar, Birgir Ásgeir Kristjánsson, framkvæmdastjóri umhverfissviðs Íslenska Gámafélagsins og Óskar Örn Þórhallsson hjá Endurvinnslunni.
Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, Líf Lárusdóttir, verkefnastjóri sölu- og markaðsmála Gámaþjónustunnar, Birgir Ásgeir Kristjánsson, framkvæmdastjóri umhverfissviðs Íslenska Gámafélagsins og Óskar Örn Þórhallsson hjá Endurvinnslunni. birgir ísleifur gunnarsson
Endurvinnsluátakið „Gefum jólaljósum lengra líf – endurvinnum álið í sprittkertunum“ fór af stað í dag þegar Guðmundur Ingi Guðbrandsson, nýskipaður umhverfis- og auðlindaráðherra, tók á móti aðstandendum átaksins í umhverfisráðuneytinu.

Endurvinnslan, Fura málmendurvinnsla, Gámaþjónustan, Íslenska gámafélagið, Málmsteypan Hella, Plastiðjan Bjarg, Samál – Samtök álframleiðenda, Samtök iðnaðarins og Sorpa standa að átakinu.

Tilgangurinn er að fá fjölskyldur til að skila álinu í sprittkertum til endurvinnslu og efla vitund Íslendinga um mikilvægi þess að endurvinna það ál sem fellur til á heimilum og hjá fyrirtækjum.

Ætla má að á ári hverju séu notuð um 3 milljónir sprittkerta hér á landi. Til að setja hlutina í samhengi, þá dugar álið úr þremur sprittkertum í eina drykkjardós og einungis þarf þúsund sprittkerti til að búa til reiðhjól.

Skila má sprittkertum á um 90 endurvinnslu- og móttökustöðvar um allt land.

Þá gefst fólki kostur á að setja kertin í grænu tunnurnar sem eru í boði hjá Gámaþjónustunni og Íslenska gámafélaginu.

Álið sem safnast verður pressað hjá Furu og endurunnið hér á landi, en nánar verður tilkynnt um útfærslu þess þegar söfnunarátakinu lýkur í lok janúar.

Ál hefur þá sérstöðu að það má nýta aftur og aftur án þess að það tapi upprunalegum eiginleikum sínum. Einungis þarf um 5% af orkunni sem fór upphaflega í að framleiða álið til að endurvinna það. Það þýðir að mikil verðmæti leysast úr læðingi við endurvinnslu álsins og færir það stoðir undir rekstur endurvinnslufyrirtækja víða um Evrópu.

Þá dregur orkusparnaðurinn við endurvinnslu áls verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda, enda verður almennt mest losun frá orkuvinnslunni við framleiðslu áls í heiminum.

Átakið hófst, sem fyrr segir, í dag og lýkur því 31. janúar næstkomandi. Hægt er að fylgjast með framgangi þess á Facebook-síðunni „Endurvinnum álið“.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×