Erlent

Fólkið sem rauf þögnina manneskja ársins hjá Time

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Á meðal tákngervinga #Metoo hjá time er tónlistarkonan Taylor Swift sem vakti athygli á árinu þegar hún kærði plötusnúð fyrir kynferðislega áreitni.
Á meðal tákngervinga #Metoo hjá time er tónlistarkonan Taylor Swift sem vakti athygli á árinu þegar hún kærði plötusnúð fyrir kynferðislega áreitni. Skjáskot

Fólkið sem rauf þögnina og ræddi opinskátt um kynferðislega áreitni og kynferðisofbeldi eru manneskja ársins að mati tímaritsins Time.

„Þetta varð myllumerki, hreyfing, uppgjör. En byrjaði, eins og samfélagsbreytingar gera gjarnan, með einstöku hugrekki,“ segir í rökstuðningi tímaritsins.

„Leikarinn sem steig fram með söguna af naugðunartilburðum kvikmyndarisans Harvey Weinstein í hótelsvítu Beverly Hills tveimur áratugum fyrr. Jarðaberjatínslukonan sem heyrði söguna og ákvað að segja sína eigin. Bloggfærsla unga verkfræðingsins um gauramenninguna í stærsta sprotafyrirtækinu í Sílíkondal sem olli því að fyrirtækið rak stofnandann og tuttugu aðra starfsmenn. Lobbíistinn frá Kaliforníu sem skrifaði bréf og veitti 140 stjórnmálakonum innblástur til að krefjast þess að ríkisyfirvöld umberi ekki lengur gerendur og þá sem gera þeim kleift að brjóta kynferðislega á fólki. Hrár og ögrandi vitnisburður stórstjörnunnar um plötusnúðinn sem káfaði henni.“

Ashley Judd, Susan Fowler, Adama Iwu, Taylor Swift og Isabel Pascual eru tákngervingar byltingarinnar á forsíðu Time. Allar hafa þær verið áberandi í umræðunni síðustu mánuði um kynferðisofbeldi og kynferðislega áreitni.

Spilaborg sem hrundi

Síðan fréttir voru fyrst sagðar þann 5. október af kynferðislegri áreitni Harvey Weinstein hafa fjölmargar konur og karlar stigið fram í Bandaríkjunum og ásakað leikara, leikstjóra, tónlistarmenn, stjórnmálamenn og aðra áhrifamenn um kynferðislega áreitni, nauðgun og ýmsa óviðeigandi hegðun í sinn garð.

Slíkar ásakanir hafa orðið til þess að framleiðslu fjölmargra sjónvarpsþátta og kvikmynda hefur verið hætt. Að sama skapi var leikaranum Kevin Spacey skipt út fyrir leikarann Christopher Plummer í nýjustu kvikmynd Ridleys Scott, All the Money in the World.

Ashley Judd, Susan Fowler, Adama Iwu, Taylor Swift og Isabel Pascual eru á forsíðu tímaritsins.TIME

Áhrifa byltingarinnar sem á sér stað í skemmtanabransanum í Bandaríkjunum gætir einnig innan stjórnmálanna í Bandaríkjunum og hafa að minnsta kosti tveir öldungadeildarþingmenn verið nefndir til sögunnar. Annar þeirra er John Conyers, öldungadeildarþingmaður Demókrata í Bandaríkjunum til margra ára, sem viðurkennt hefur að hafa greitt fyrrverandi starfskonu sinni bætur eftir að hún sakaði hann um kynferðislega áreitni árið 2015. Demókratar brugðust skjótt við og hafa nú hafið rannsókn á málinu innan siðferðiseftirlitsnefndar flokksins.

Gerðu hvísluleikinn opinberan

Hér á landi hefur byltingin einnig haft áhrif. Á fimmta hundrað stjórnmálakonur skrifuðu undir yfirlýsingu á dögunum þar sem þær kölluðu eftir breytingum á stjórnmálamenningu landsins og sögðu frá ofbeldi sem þær höfðu orðið fyrir. Ein konan lýsti nauðgun sem hún varð fyrir í gleðskap á vegum stjórnmálaflokks.

Þá hafa konur í sviðslistum og kvikmyndaiðnaði einnig opnað umræðuna um ofbeldi í sínum geira. Tjaldið féll og í ljós komu grófar sögur af kynferðislegri áreitni og kynferðisofbeldi á vinnustað. Sömuleiðis hafa konur í vísindum einnig stigið fram og krafist breytinga og enn eru að myndast hópar íslenskra kvenna sem vilja segja hingað og ekki lengra.

Ráðherrar hafa brugðist við #Metoo byltingunni, sem og rektorar, leikhússtjórar og stjórnmálamenn.

„Fyrir að veita fólki rödd til að greina frá leyndarmálum, fyrir að færa hvísluleikinn inn á hinn opinbera vettvang, fyrir að hvetja okkur öll til að hætta að sætta okkur við hið óásættanlega, eru konurnar sem rufu þögnina manneskja ársins 2017.“


Tengdar fréttir

Verst geymda leyndarmál Hollywood í áratugi

Harvey Weinstein hefur verið einn valdamesti maðurinn í Hollywood í áratugi. Hann hefur nú verið rekinn frá framleiðslufyrirtæki sínu og er á leið í meðferð við kynlífsfíkn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×