Erlent

Norður-Kóreumenn reiðubúnir að ræða beint við Bandaríkjamenn

Atli Ísleifsson skrifar
Sergei Lavrov og Rex Tillerson funduðu í Vín í gær. Myndin er tekin á fundi ráðherranna í maí síðastliðinn.
Sergei Lavrov og Rex Tillerson funduðu í Vín í gær. Myndin er tekin á fundi ráðherranna í maí síðastliðinn. Vísir/AFP
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússa, segir að Norður-Kóreumenn séu opnir fyrir beinum viðræðum við Bandaríkjamenn til að létta á spennunni á Kóreuskaga sem sjaldan eða aldrei hefur verið meiri.

Guardian segir frá því að Lavrov hafi komið þessum skilaboðum áleiðis til kollega síns í Bandaríkjunum, Rex Tillerson, þegar þeir hittust í Vín í Austurríki í gær.

Tillerson hefur ekki tjáð sig um hugmyndina en utanríkisráðuneytið hefur áður sagt að Norður-Kóreumenn verði að sýna það í verki að þeir séu reiðubúnir að hætta kjarnorkutilraunum sínum, áður en hægt er að hefja viðræður.

Það hafa þeir sannarlega ekki gert, heldur þvert á móti hert á vopnaþróun sinni síðustu mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×