Viðskipti innlent

Íslendingar pöntuðu 667 risasjónvörp á netinu

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Í þessum gámi eru 667 risasjónvörp, reiðubúin til afhendingar. Þau verða keyrð út á næstu dögum.
Í þessum gámi eru 667 risasjónvörp, reiðubúin til afhendingar. Þau verða keyrð út á næstu dögum.
„Salan fór fram úr væntingum okkar,“ segir Jóhann Þórsson, markaðsstjóri Hópkaups, en fyrirtækið keyrir þessa dagana 667 risasjónvörp upp að dyrum til Íslendinga eftir vel heppnaða sölu á vefsíðu sinni.

Hópkaup kannaði í sumar hvort áhugi væri fyrir því að panta bretti af 55 og 65 tommu sjónvörpum. 150 manns þurftu að lágmarki að skrá greiðslukort sín til þess að pöntunin yrði send út til framleiðandans, en áhuginn leyndi sér hreint ekki og seldust að lokum tæplega 700 sjónvörp.

Ferlið er þannig að Hópkaup auglýsir tilboðið og tekur það fram að ef ákveðið margir panta sjónvarpið á netinu muni þeir senda pöntun til framleiðandans. Hópkaup borgar framleiðandanum þegar pöntunin fer fram og gjaldfærir síðan af greiðslukortum viðskiptavina sinna.

Fyrirtækið sem framleiðir sjónvörpin heitir Enox og eru þau framleidd í Kína. Jóhann segir þau töluvert ódýrari en gengur og gerist, en segir gæðin þó ekki leyna sér enda eru þau framleidd í sömu verksmiðju og Samsung-sjónvörpin.

Vilja breyta HM upplifuninni fyrir Íslendingum

Afhendingin hófst, sem fyrr segir, í dag en á sama tíma hófst annað tilboð á sömu sjónvarpsgerð á vefsíðu Hópkaups. Um er að ræða 65 og 75 tommu sjónvörp að þessu sinni, hvorki meira né minna.

Hann segir markmiðið að breyta upplifun þeirra Íslendinga sem ekki munu ferðast á heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem haldið verður í Rússlandi á næsta ári, en eins og öllum ætti að vera kunnugt tryggði íslenska karlalandsliðið sér þátttökurétt þar í haust.

„Við viljum að fólki líði eins og það sé á vellinum,“ segir Jóhann að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×