Körfubolti

Hildur Björg stigahæst í sigri

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Hildur Björg í landsleik, en hún var stigahæst í kvöld.
Hildur Björg í landsleik, en hún var stigahæst í kvöld. vísir/ernir
Hildur Björg Kjartansdóttir og stöllur í Laboratorios unnu Vega Lagunera í spænsku 1. deildinni í körfubolta í kvöld.

Seinni hálfleikur leiksins hefði nánast getað verið handboltaleikur miðað við stigaskorið, en liðin skoruðu samtals aðeins 27 stig í síðustu tveimur leikhlutunum.

Staðan í hálfleik var 27-38, en lokatölur urðu 43-49.

Hildur skoraði 11 stig fyrir Laboratorios og var stigahæst þeirra. Hún tók einnig sex fráköst í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×