Skoðun

Opið bréf til samgönguráðherra

Ásgeir Magnússon skrifar
Grein þessi er reyndar líka til samgönguráðs, Vegagerðarinnar og allra þingmanna sem í nýliðnum kosningum lofuðu að leggja áherslu á uppbyggingu innviða og þar með samgöngumál.

Fyrir skemmstu varð enn einu sinni stórslys við brúna yfir Jökulsá á Sólheimasandi og segja má að lukkan ein hafi ráðið því að þarna varð ekki banaslys. Tveir fólksbílar með erlendum ferðamönnum lentu saman rétt vestan brúarinnar með þeim afleiðingum að báðir bílarnir lentu stórskemmdir utan vegar og að beita þurfti klippum til að ná slösuðu fólki úr bílflökunum. Þrír farþegar voru fluttir með sjúkrabílum af slysstað og einn með þyrlu. Slysið sem þarna varð er rannsakað af lögreglunni sem slys við einbreiða brú. Kannski er erfitt að segja nákvæmlega hvað olli þessu slysi og e.t.v. ráða þarna margir samverkandi þættir, en sá eini þeirra sem við getum ráðið við eru aðstæður á þjóðveginum. Þarna er blindhæð og beygja á veginum rétt áður en komið er að einbreiðri brúnni og miklar þrengingar vegarins að brúarsporðinum. Erfiðara er að ráða við aðra þætti sem gætu haft áhrif, svo sem færð og veður og hæfni ökumanna sem e.t.v. hafa sjaldan eða aldrei ekið um svona mjóa vegi og aldrei áður séð einbreiða brú á aðalþjóðvegi.

Því miður endar þarna enn einu sinni heimsókn erlendra ferðamanna sem við núorðið byggjum að verulegu leyti afkomu okkar á, með sjúkraflutningum og sjúkrahúsvist okkar gesta. Þessu verður að linna.

Öruggt má telja að umferðin um þessa einbreiðu brú sé margföld á við flestar eða allar aðrar slíkar brýr í landinu og því verður brúin á Jökulsá á Sólheimasandi að hafa algeran forgang í því verkefni að fækka einbreiðum brúm á þjóðvegi 1. Þegar umferðarþunginn er hvað mestur fara um brúna hátt í 4.000 bílar á dag og það segir sig sjálft að þetta mannvirki þolir ekki slíka umferð. Þetta er líka fyrsta einbreiða brúin sem ferðamenn koma að á ferð sinni um landið og margir átta sig ekki á því hvernig beri að fara um slíkt mannvirki.

Kæru þingmenn, ráðherrar og stjórnendur samgöngumála í landinu, látum það verkefni að tvöfalda þessa brú ekki bíða eftir næsta banaslysi.

 

Höfundur er sveitarstjóri Mýrdalshrepps.




Skoðun

Skoðun

Al­einn í heiminum?

Lukka Sigurðardóttir,Katrín Harðardóttir ,Margrét Kristín Blöndal skrifar

Sjá meira


×