Enski boltinn

Sá stoðsendingahæsti framlengir við City

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
David Silva í leiknum gegn Southampton í gær.
David Silva í leiknum gegn Southampton í gær. vísir/getty
David Silva hefur framlengt samning sinn við Manchester City til ársins 2020.

Silva kom til City sumarið 2010 og er á sínu áttunda tímabilinu hjá liðinu.

Silva, sem er 31 árs, hefur tvisvar sinnum orðið Englandsmeistari og deildabikarmeistari með City og einu sinni bikarmeistari.

Spánverjinn hefur leikið 324 leiki fyrir City og skorað 52 mörk. Hann er stoðsendingahæsti leikmaður liðsins í ensku úrvalsdeildinni, með 72 stoðsendingar.

Silva hefur skorað eitt mark og lagt upp átta í ensku úrvalsdeildinni í vetur. City er með átta stiga forskot á toppi hennar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×