Enski boltinn

Everton staðfestir ráðningu Stóra Sams

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sæl elskan, þeir réðu kallinn bara.
Sæl elskan, þeir réðu kallinn bara. vísir/getty
Everton hefur staðfest ráðninguna á Sam Allardyce sem næsta knattspyrnustjóra liðsins.

Stóri Sam fylgdist með úr stúkunni þegar Everton valtaði yfir West Ham, 4-0, í gær. Hann stýrir Everton í fyrsta sinn gegn Huddersfield á laugardaginn.

Allardyce skrifaði undir samning sem gildir til júní 2019.

Stóri Sam er gríðarlega reyndur í faginu en hann hefur þjálfað síðan 1991. Hann var lengst af stjóri Bolton Wanderers.

David Unsworth hefur stýrt Everton í undanförnum leikjum, eða frá því Ronald Koeman var látinn taka pokann sinn í síðasta mánuði.

Stóri Sam var síðast við stjórnvölinn hjá Crystal Palace.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×