Erlent

Flóðbylgja skall á Vanúatú og Nýju-Kaledóníu

Atli Ísleifsson skrifar
Frá Port Vila, höfuðborg Vanúatú. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Frá Port Vila, höfuðborg Vanúatú. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Lítil flóðbylgja skall á eyjaklasana Vanúatú og í Nýju-Kaledóníu í Kyrrahafi í nótt eftir að öflugur jarðskjálfti, sem mældist 7,3 stig, reið yfir á hafsvæðinu austur af Loyalty-eyjum í Suður-Kyrrahafi.

Flóðbylgjan var milli 30 og 100 sentimetrar að hæð að því er fram kemur í frétt Guardian.

Skjálftinn var annar í röðinni á innan við sólarhring á svæðinu og þriðji stóri skjálftinn sem þarna ríður yfir í þessum mánuði.

Flóðbylgjan olli ekki tjóni og engar skemmdir urðu á nærliggjandi eyjum svo vitað sé.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×