Erlent

Íbúar dansks bæjar ýmist reiðir eða skellihlæjandi vegna jólatrés bæjarins

Atli Ísleifsson skrifar
Jólatréð er staðsett fyrir framan gamla apótekið í Aars.
Jólatréð er staðsett fyrir framan gamla apótekið í Aars.
Jólatré, sem bæjaryfirvöld í danska bænum Aars á Norður-Jótlandi hafa komið upp, hefur vakið mikið umtal í bænum þar sem það þykir með eindæmum ljótt.

Íbúar hafa ýmist skemmt sér af útliti trésins eða lýst yfir reiði sinni með val bæjarstarfsmanna á jólatré.

„Jólatrésskrímsli“ og „Ég hef aldrei séð neitt svo ljótt“ eru meðal orða sem hafa verið látin falla um tréð sem staðsett er fyrir utan gamla apótekið í bænum.

Mogens Kristensen, starfsmaður bæjarins, segir í samtali við BT að fjöldi kvartana hafi borist og þykir honum leitt að bæjarbúar hafi fengið svo ljótt tré til að skapa jólastemmningu á götum bæjarins. Hann heitir því að tréð verði fjarlægt síðar í vikunni.

Að neðan má sjá mynd af trénu sem farið hefur í dreifingu á Facebook.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×