Enski boltinn

Í tveggja leikja bann fyrir leikaraskap

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Oumar Niasse, framherji Everton, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann fyrir að hafa gerst sekur um leikaraskap.

Niasse er fyrsti leikmaðurinn sem er dæmdur í bann vegna leikaraskaps en nýjar reglur þess eðlis voru innleiddar í ensku úrvalsdeildinni í haust.

Niasse féll auðveldlega í teignum eftir viðskipti við Scott Dann, leikmann Crystal Palace, um helgina.

Leighton Baines jafnaði metin í 1-1 úr vítaspyrnunni sem Niasse fiskaði. Senegalski framherjinn jafnaði svo í 2-2 í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Það urðu lokatölur leiksins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×