Handbolti

Seinni bylgjan: Stundum eru markmenn vitlausir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Haukamaðurinn Hákon Daði Styrmisson er mögnuð vítaskytta og hann sannaði það enn eina ferðina í leiknum gegn Valsmönnum er hann sett fimm víti af sex á nákvæmlega sama stað.

Hákon Daði klúðraði ekki einu vítakasti í leiknum og Sebastían Alexandersson trúði ekki sínum eigin augum í Seinni bylgjunni í gær.

„Djísus kræst. Sem markmaður þá hugsar maður að hann má skora alls staðar nema þarna,“ sagði fyrrum markvörðurinn Sebastían en Jóhann Gunnar Einarsson spurði eftir hvað mörg víti?

„Eftir tvö en þrjú í röð er bannað. Óli Stef fíflaði einu sinni Tékkann Galia með sex vippum í röð þannig að stundum eru menn vitlausir í markinu. Ég hafði lagst allur í hornið og boðið manninum að skjóta bara eitthvert annað.“

Sjá má umræðuna og vítin hér að ofan.


Tengdar fréttir

Seinni bylgjan: Dómararnir byrja að reka út af fyrir allt

Kári Garðarsson, þjálfari Gróttu, fór ekki fögrum orðum um frammistöðu dómaranna í leik Gróttu og Fjölnis. "Mér fannst þetta á köflum vera sirkus og þetta dómarapar á ekki heima í þessari deild,“ sagði Kári meðal annars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×