Handbolti

Þessi tölfræði segir að ÍBV á ekki að eiga séns í Kaplakrika í kvöld

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Róbert Aron Hostert og Ásbjörn Friðriksson mætast í Krikanum í kvöld í stórleik níundu umferðar.
Róbert Aron Hostert og Ásbjörn Friðriksson mætast í Krikanum í kvöld í stórleik níundu umferðar. vísir/anton/eyþór
Níunda umferð Olís-deildar karla klárast í kvöld þegar að topplið FH tekur á móti ÍBV í stórleik umferðarinnar í Kaplakrika klukkan 19.30. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport HD.

FH-liðið er búið að vera það besta í deildinni en það er með 16 stig eða fullt hús eftir átta leiki. Hið ótrúlega vel mannaða lið ÍBV er með tólf stig eftir átta leiki en það hefur spilað alla leikina á útivelli eins og frægt er orðið.

Sjá einnig:Eyjar breytast í Alcatraz fyrir strákana: Er í lagi að stelpurnar spili í annars flokks sal?

ÍBV var spáð Íslandsmeistaratitlinum af þjálfurum, fyrirliðum og forráðamönnum fyrir mót og deildarmeistaratitlinum af sérfræðingum Seinni bylgjunnar. Það á að vera langbesta liðið á pappírunum en spilamennska þess hefur ekki verið að heilla of mikið þó að stigin séu að detta í hús.

FH hefur aftur á móti verið að spila besta handboltann og virðist ósigrandi en fyrir utan að vera taplaust með fullt hús stig er liðið búið að skora flest mörk og vinna flesta tíu marka sigra.

Einar Rafn Eiðsson er næst besti leikmaður deildarinnar samkvæmt HB Statz.vísir/stefán

Einar næst bestur allra

Ef HB Statz tölfræðin er skoðuð kemur í ljós að ÍBV á í raun ekki að eiga möguleika í kvöld en sem betur fer fyrir Eyjamenn hefur tölfræði aldrei unnið leik fyrir fram.

Sjá einnig:Seinni bylgjan: Haukur er jafngóður og Gísli Þorgeir, ef ekki betri

Byrjunarlið FH er með mun betri heildareinkunn séu HB Statz-einkunnir leikmannnanna lagðar saman en hún er 7,3. Eyjaliðið nær aðeins meðaleinkunn upp á 6,4 en miklu munar á þessum liðum.

FH er eina liðið í deildinni með þrjá leikmenn á topp tíu á Power Rankings HB Statz yfir bestu leikmenn deildarinnar en þar eru Einar Rafn Eiðsson í 2. sæti, Ásbjörn Friðriksson í 8. sæti og Gísli Þorgeir Kristjánsson í 9. sæti.

Þar fyrir neðan er svo Ágúst Elí Björgvinsson, markvörður, í 13. sæti en hann er í 3. sæti á markvarðalistanum. Á sama tíma er Aron Rafn Eðvarðsson, landsliðsmarkvörður og aðalmarkvörður ÍBV, í 96. sæti á heildarlistanum.

Aron Rafn Eðvarðsson hefur ekki verið góður.vísir/anton brink

Munar mestu í tveimur stöðum

Efsti leikmaður ÍBV er Sigurbergur Sveinsson en hann er í tólfta sæti með heildareinkunn upp á 7,3 en Róbert Aron Hostert er svo í 24. sæti og hægri hornamaðurinn Theodór Sigurbjörnsson í 31. sæti á Power Rankings HB Statz.

Leikmenn FH eru betri í öllum stöðum séu byrjunarliðið sett upp á móti hvort öðru en þar munar mestu á markvörðunum og hægri skyttunum. Einar Rafn Eiðsson er einn besti leikmaður deildarinnar með 8,1 í heildareinkunn en Agnar Smári Jónsson er með 6,4 í einkunn.

Nú er bara að sjá hvort ÍBV geti sannað það að tölfræðin skipti engu máli þegar út á parketið er komið eða hvort FH-hraðlestinn hreinlega keyri yfir gestina úr Vestmannaeyjum.

Meðaltal byrjunarliðs FH og ÍBV og heildareinkunn

Markverðir:

FH: Ágúst Elí Björgvinsson

38% hlutfallsmarkvarsla,

41% víti varin

Heildareinkunn: 7,2

ÍBV: Aron Rafn Eðvarðsson

27% hlutfallsmarkvarsla,

31% víti varin

Heildareinkunn: 5,6

Vinstri hornamenn:

FH: Arnar Freyr Ársælsson

3 mörk (62% skotnýting)

Hraðaupphlaupsmörk: 1

Stolnir boltar: 0,6

Heildareinkunn: 6,4

ÍBV: Grétar Þór Eyþórsson, ÍBV

2 mörk í leik (61% skotnýting)  

Hraðaupphlaupsmörk: 0,1

Stolnir boltar: 0,3

Heildareinkunn: 5,8

Vinstri skyttur:

FH: Ásbjörn Friðriksson

5,6 mörk í leik (65% skotnýting)

Sköpuð færi/stoðsendingar: 4,9/3,3

Löglegar stöðvanir: 1,5

Heildareinkunn: 7,6

ÍBV: Sigurbergur Sveinson

5 mörk í leik (51% skotnýting)

Sköpuð færi/stoðsendingar: 5/3,6

Löglegar stöðvanir: 1,3

Heildareinkunn: 7,3

Leikstjórnendur:

FH: Gísli Þorgeir Kristjánsson

4,8 mörk (71% skotnýting)

Sköpuð færi/stoðsendingar: 5,2/2,8

Löglegar stöðvanir: 1

Heildareinkunn: 7,6

ÍBV: Róbert Aron Hostert

4,5 mörk (46% skotnýting)

Sköpuð færi/stoðsendingar: 3,9/2,8

Löglegar stöðvanir: 3,1

Heildareinkunn: 7

Hægri skyttur:

FH: Einar Rafn Eiðsson

5,9 mörk (64% skotnýting)

Sköpuð færi/stoðsendingar: 5,8/4

Löglegar stöðvanir: 3,1

Heildareinkunn: 8,1

ÍBV: Agnar Smári Jónsson

4,5 mörk (53% skotnýting)

Sköpuð færi/stoðsendingar: 1,5/1

Löglegar stöðvanir: 1,8

Heildareinkunn: 6,4

Hægri hornamenn:

FH: Óðinn Þór Ríkharðsson

5,4 mörk í leik (69% skotnýting)

Hraðaupphlaupsmörk: 3

Stolnir boltar: 1

Heildareinkunn: 6,9

ÍBV: Theodór Sigurbjörnsson

6,6 mörk (64% skotnýting)

Hraðaupphlaupsmörk: 2,4

Stolnir boltar: 0,7

Heildareinkunn: 6,8

Línumenn:

FH: Ágúst Birgisson

3,9 mörk (78% skotnýting)

Fiskuð víti: 1,3

Löglegar stöðvanir: 4

Varin skot: 0,6

Heildareinkunn: 7

ÍBV: Kári Kristján Kristjánsson

2,4 (71% skotnýting)

Fiskuð víti: 1

Löglegar stöðvanir: 0,4

Varin skot: 0

Heildareinkunn: 6

Meðaleinkunn byrjunarliðs FH: 7,3

Meðaleinkunn byrjunarliðs ÍBV: 6,4


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×