Stelpurnar töpuðu í Slóvakíu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Helena var yfirburðamanneskja í íslenska liðinu.
Helena var yfirburðamanneskja í íslenska liðinu. vísir/andri marinó
Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik varð að sætta sig við tap, 78-62, gegn Slóvakú ytra í kvöld.

Þetta var annar leikur íslenska liðsins í undankeppni EM en Ísland hefur tapað þeim báðum.

Okkar lið var inn í leiknum lengstum en gaf allt of mikið eftir í lokaleikhlutanum. Slóvakíska liðið gaf svo sannarlega færi á sér í þessum leik en stelpurnar okkar nýttu sér það ekki.

Skotnýtingin undir körfunni var léleg og svo gerði liðið sig seka um allt of mörg klaufamistök. Það mátti ekki í svona jöfnum leik.

Helena Sverrisdóttir var potturinn og pannan í leik íslenska liðsins eins og svo oft áður. Hún skoraði 22 stig, tók 7 fráköst og gaf 6 stoðsendingar.

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir setti niður þrjá þrista og endaði með 9 stig. Hildur Björg Kjartansdóttir einnig með 9 stig en hún tók þess utan 10 fráköst.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira