Innlent

Rýmingaráætlun útfærð með hjálp íbúa við Öræfajökul

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Landhelgisgæslan aðstoðaði sérfræðinga og vísindamenn við athuganir á Öræfajökli í vikunni.
Landhelgisgæslan aðstoðaði sérfræðinga og vísindamenn við athuganir á Öræfajökli í vikunni. Vísir/Andri Jóhannesson
Lögreglan á Suðurlandi birti í dag meginatriði rýmingaráætlunar við Öræfajökul sem unnin er í samráði við heimamenn. Í nýlegu hættumati vegna óvissustigsins við jökulinn kemur m.a. fram að aðeins 20 mínútur myndu líða frá því að eldgos næði til yfirborðs á jöklinum og þangað til að flóð væri komið að þjóðvegi 1.

Í tilkynningu frá lögreglu segir einnig að ekki hafi verið reiknað með að vinna rýmingar- og viðbragðsáætlanir á svæðinu fyrr en seint á næsta ári. Vegna aukinnar virkni við Öræfajökul hefur þessari vinnu nú verið flýtt en lögregla birti meginatriði rýmingaráætlunar á Facebook-síðu sinni í dag.

„Við gerð rýmingaráætlana er horft til tveggja verkþátta, annars vegar áætlunar um neyðarrýmingu þar sem eldgos hefjist nánast fyrirvaralaust og engin tími gefist til undirbúnings og hinsvegar rýmingaráætlunar í fjórum þáttum þar sem hægt væri að vinna skipulega að rýmingu.“

Slík áætlun væri í meginatriðum í fjórum fösum, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi:

Stig a:

• Slóðum og vegum frá þjóðvegi 1 lokað

• Ytri lokanir settar upp

• Lokað inn á svæðið frá Lómagnúp í vestri og Jökulsárlóni í austri

• Eingöngu íbúum, vísindamönnum, viðbragðsaðilum, flutningabílum og annarri nauðsynlegri umferð hleypt inn fyrir

• Flutningur á búfé undirbúinn

Stig b:

• Allir ferðamenn og aðrir sem ekki þurfa nauðsynlega að vera á svæðinu látnir yfirgefa það

• Búfé flutt á brott

• Lokað fyrir alla umferð inná svæðið aðra en viðbragðsaðila og vísindamanna

Stig c:

• Allsherjarrýming svæðisins

Stig d:

• Lokanir færðar vestar og austar með tilliti til spár um öskufall

• Rýmingarsvæði endurmetið með tilliti til spár um öskufall

Lykilaðilar við gerð og útfærslu rýmingaráætlana eru íbúar og aðrir hagsmunaaðilar á rýmingarsvæðinu og í næsta nágrenni, að því er fram kemur í tilkynningu.

Óvissustig almannavarna vegna Öræfajökuls verður áfram í gildi og litakóði vegna flugs í grennd við jökulinn verður áfram gulur á meðan óvissa er um framhald atburðarásar sem nú er í jöklinum. Þrír jarðskjalftar urðu við Hvannadalshnjúk í gærkvöldi og í nótt og segir jarðskjálftafræðingur allar hreyfingar varhugaverðar.

Staðan á Öræfajökli var tekin í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag en í spilaranum hér að ofan má m.a. hlusta á viðtöl fréttastofu við Magnús Tuma Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, og Einar Hjörleifsson, náttúruvársérfræðing á vakt hjá Veðurstofu Íslands. Tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi má lesa í heild sinni hér að neðan.


Tengdar fréttir

Óvissustig almannavarna áfram í gildi vegna Öræfajökuls

Stöðufundur var haldinn á Veðurstofu Íslands í kvöld til þess að reyna fá skýrari mynd um hvað sé að gerast í Öræfajökli en í gær kom í ljós nýr sigketill sem segir til um að eldstöðin sé að vakna til lífsins. Óvissustig almannavarna verður áfram í gildi á meðan staðan er rannsökuð.

„Höfum ekki reynslu af svona atburðum í Öræfajökli“

Í gær kom í ljós nýr sigketill sem segir til um að eldstöðin sé að vakna til lífsins og þá hafa verið nokkrar jarðhræringar á svæðinu. Jarðeðlisfræðingur segir þó ekki ástæðu til þess að álykta að gos sé yfirvofandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×